23.5.04
Já, það er fjör - já, það er fjör...já, það er fjör á spilakvöldum.

Það var spilakvöld á Eggertsgötunni í kvöld. Nokkrir velvaldir einstaklingar fengu boðskort og mættu galvösk, reyndar sumir soldið mikið seint þar sem náttúrulega fegurðin var ekki alveg að gera sig. Kát spiluðum við Trivial þar sem strákarnir svindluðu og sigruðu þar með en við hefndum okkar í Partý&Co - what else is new. Það voru þvílíkar sálfræðintengingar okkar á milli að annað eins hefur sjaldan sést!

Við kíktum siðan nokkur niður í bæ um 2 leytið en vorum fljót að komast að því að fm-hnakka og hnátur voru að gera bæinn vitlausan og því stoppuðum við ekki lengi við. Voru þó nógu lengi til að sjá einn hnakka rífa sig niður í rassgat við Ernu, veit ekki alveg um hvað en held að hann hafi verið að saka hana um að stela af sér 5000 kalli eða eitthvað álíka. Hann var ekki gáfulegur pilturinn. Ég öfunda hana ekki af því að vinna við að þjóna svona leiðindaliði. Það markverðasta niður í bæ var að þessu undanskildu það að hitta bæði Audda Blö og Val í Buttercup á sama stað - ótrúlegt helvíti.

Ég dansaði ekki neitt þar sem ég þoli ekki að dansa á engu plássi með rassgatið á næsta manni þétt upp við mig - ekki hrifin af annarra manna rössum. Nema sumum rössum sem eru úti í Kína og tilheyra mér.

Ég er að hugsa um að sofa vel á lengi á morgun og fara svo jafnvel á æfingu, hefði held ég gott af því. Nammidagurinn var tekinn létt í dag, borðaði bara nokkrar kúlur svo að Sígurjón æti ekki 560 heldur bara 550.

Það á að taka VÖRUMERKI út úr Partý&Co, þetta er rugl reitur sem gerir alla brjálaða og sumt er vonlaust að geta. Í kvöld fengum við til að mynda Peningaskápur og fiskamatur - gott! Ég er ekki hrifin af þessu ég verð að segja það.

Annars kát...

Hafdís skrifaði klukkan 4:21 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli