20.5.04
Hvað ætli ég myndi fá langan fangelsisdóm fyrir að drepa nágranna mína? Ég get pottþétt borið geðveiki fyrir mig þar sem þau eru að gera mig geðveika. Ég sofnaði ekki fyrr en kl.1 í nótt og þar sem ég er ekki búin að bæta mér upp svefntapið mikla ennþá hefði ég þurft að sofa til svona 11 helst en nei. Núna er þau að hlusta á gamla tónlist í hæsta styrk, veit ekki hvað þau eru að gera annað. Það eru allir gluggar lokaðir og því ætti ég ekki að heyra svo mikið - þau hljóta að vera með þetta á gígantískum hávaða. Ég held reyndar enn í vonina um að þau séu að flytja þar sem það virðist vera svo hljóðbært uppi - ég hef alla vega ekki heyrt svona í tónlist áður - vona að þau hafi ekki verið að kaupa ný hljómflutningstæki og séu að prófa þau. Reyndar soldið skrýtið að prófa þau kl.9 á fimmtudagsmorgni. Mér finnst alveg eins og það sé laugardagur. Maður verður svo ruglaður þegar það eru svona frídagar inn í miðri viku.

Ég er búin að heyra aðeins í Sveinbirni. Ferðin gekk ágætlega. Það voru smá tafir í Leifsstöð og því fór flugvélin ekki kl.7.20 heldur um 9 leytið. Hann beið svo í Amsterdam í nokkra tíma eftir fluginu til Peking. Flugvélin sem flaug með hann til Peking var víst HUGE en þröng að sama skapi - ekki alltaf sem þetta tvennt fer saman ;) Hann sefur líka illa þar sem herbergisfélaginn hrýtur svo mikið...erfitt að skipta á mér og hrotubrjót! Ísbjörnin (bangsi) sem er minn rekkjunautur þessa dagana er einmitt til mikillar fyrirmyndar. Gæti ekki kvartað. Það er reyndar dáldið erfitt að halda uppi samræðum við hann en...ég læt mig hafa það.

Það var saumaklúbbur hjá mér í gærkvöldi. Svaka stuð. Ég bakaði eitthvað smá handa þessum elskum. Þær voru reyndar ekki næstum nógu duglegar að borða þar sem það er ennþá talsverður afgangur og ekki dunda ég mér við að borða þetta ein. Er að hugsa um að fara með þetta heim í Skipasund og færa foreldrum mínum og systur.

Ég á að taka morgunskokk, langt og rólegt. Er samt eiginlega of þreytt ennþá. Hefði verið til í að sofa í svona klukkutíma í viðbót að minnsta kosti. Er soldið að spá í að fara í föt og segja nágrönnnum mínum til syndanna. Verst að ég veit ekki hvaða rétt ég hef til þess. Veit ekki hvenær maður má byrja að hafa læti á morgnana!

Ég ætla að reyna að finna mér eyrnatappa...

Hafdís skrifaði klukkan 8:59 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli