13.5.04
Haldiði ekki að stelpan hafi skellt sér út á lífið í gær?
Ég ákvað að hitta vini mína úr sálfræðinni á Viktor í gær en eftir að hafa farið í sturtu og komið mér í föt sá ég fram á að nenna ekki að fara að hafa mig eitthvað meira til og tímdi eiginlega ekki að skipta á sápulyktinni fyrir reykingafnyk! Ég var sem sagt búin að ákveða að beila og ætlaði bara að hafa það gott og horfa á þáttinn um EM í sjónvarpinu!
Stúlkurnar sáu þó við mér og hringdu til að láta mig vita að ég yrði sótt eftir korter - þær eru strax farnar að þekkja mig OF vel! Ég er of opin held ég og augljós!
Við skemmtum okkur konunglega á Viktor þó svo að við þekktum ekki marga og ýmis málefni voru afgreidd í gær!
Agnes er svo að fara til Köben í dag og Ásta verður að vinna úti á landi í sumar svo að það verður lítið um hitting!

Annars er það Kringlan með Evu og Gingu - júhú!

Hafdís skrifaði klukkan 1:42 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli