7.5.04
Góðann daginn.

Próf númer tvö hefst stundvíslega hjá mér kl.13:30 í dag og stendur til 16:30 mikið hlakkar mig til þegar klukkan slær hálf fimm. Þá er ég búin með 67% takk fyrir! Seinasta prófið er líka það þægilegasta í þessari törn og 5 dagar eru feyki nóg!

Ég skellti mér upp í sumarbústað eftir klippinguna en var svo drusluleg að ég varð að snúa heim á leið eftir skamma dvöl með sálfræðifélögunum góðu. Ég var frekar slöpp allan daginn og því varð ekki mikið um lestur en ég reif mig upp af rassgatinu og ákvað að það væru bara aumingjar sem væru veikir - elskuleg móðir mín er þó undantekning frá þeirri reglu þar sem hún er sko nagli. Ég er búin að sturta í mig sólhatti eins og ég fái borgað fyrir það og hann svínvirkar skal ég segja ykkur. Ég gleymdi að taka hann á miðvikudaginn og því fór sem fór.

Ég lærði nokkuð vel í gær þrátt fyrir að stelpurnar hefðu reynt að spilla mér upp í sumarbústað með eintómri gleði og ánægju. Við erum næstum orðnar verri en fólkið sem lærir upp í stofu hjá Sveinbirni en það er alvarlega búið að læra yfir sig og segir bara verkfræðibrandara!

Mamma mín átti annars afmæli í gær og af því tilefni bauð hún okkur í mat - heppin!

Jæja, ég á eftir að lesa alveg heilan helling fyrir próf.
Reikna með að senda frá mér skemmtipistil eftir prófið í aðferðafræði!

Later,

Hafdís skrifaði klukkan 10:37 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli