3.5.04
Ég vil þakka Sveinbirni kærastanum mínum, ruslaköllunum félögum mínum, sólinni sem skín glatt og vælinu í flutningabílunum sem fara með vörur niður í 10-11 fyrir að veita mér þau forréttindi að vakna kl.8.30! Svo vil ég þakka sjálfri mér fyrir að þrjóskast við inni í rúmi til 9.30 - finnst líklegt að það bjargi lærdómnum í dag.

Fyrsta prófið mitt lítur dagsins ljós á morgun - það byrjar stundvíslega klukkan 9 svo að mín verður að fara að herða sig. Ykkur er velkomið að hugsa fallega til mín frá þeim tíma og til klukkan 12. TAKK!

Það verður síðan major make over á miðvikudaginn. Ég hugsa að ég nýti mér tæknina og setji inn myndir af mér áður og eftir svo að þeir sem eru ekki þess heiðurs aðnjótandi að hitta mig reglulega geti séð hvað ég er mikil skvísa!
Ég er sem sagt lokaverkefni Maríu hárgreiðslunema og klippikonunnar minnar til eins árs! Ég leyfi henni alfarið að ráða hvað verður gert, ég veit reyndar hvernig þetta á að vera á hárgreiðslumáli en ég get ekki sagt að ég skilji mikið í því þó að hárið á mér verði solid þarna og með auknum strípum þarna og litun í A og ég veit ekki hvað og hvað og hvað. Held að myndin komi til með að útskýra þetta.

Já og svo auglýsi ég eftir fólki til að hanga með mér frá 18.maí til 8.júní - greiðslur í boði!

Hafdís skrifaði klukkan 10:05 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli