15.5.04
Ég, Sveinbjörn, Ellen vinkona og Steingrímur vinur minn a.k.a Glúbbi erum á leið á Metallicu tónleika 4.júlí! JEI :)
Snillinn hún ég ákvað að hætta mér ekki í röð dauðans og ákvað að vera bara heima undir teppi og ýta á refresh takkann! SNILLD.
Ég er mjög lukkuleg. Ég var samt MJÖG stressuð yfir þessu þar sem ég var ekki bara að kaupa miða fyrir mig, hafði framtíð vina minna í höndum mér og það er ekki besta tilfinning í heimi að ef ég hefði klúðrað þessu hefðu þau ekki séð tónleikana...
hjúkket.

Annars er ég bara að mygla úr þreytu. Svaf ekkert í nótt sökum háværu nágranna minna sem voru að ýta húsgögnunum sínum í nótt - held að þaú hafi verið að því í pinnahælum.
Vona að þau séu að flytja...annars ætla ég pottþétt að kvarta. Gleymdi líka að nefna að vekjaraklukkan þeirra hringdi fyrir allar aldir og þau létu hana hringja í 20 mínútur. Þau eru heppin að ég fór aðeins á línuskauta í gær því annars hefði ég haft svo mikla orku að ég hefði neyðst til að lemja þau!

Ég er farin að horfa á frjálsíþróttamót - áfram ÍR.

Hafdís skrifaði klukkan 12:16 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli