14.5.04
Ég gleymdi alveg að nefna að Mission Mjóna hófst í gær. Þetta mission felst í því að losa bolluna mig við nokkur vel valin kíló héðan og þaðan.
Sveinbjörn Jónsson nokkur fer einmitt til Kína eftir alltof fáa daga og hefur heitið því að koma ekki aftur heim fyrr en kærastan hans er orðin mjó - úff, hann verður sem sagt þarna í nokkur ár!
Þetta byrjaði nú samt ekkert svi aðalega vel ég laumaðist smá í snakk í gærkvöldi en framan af var ég dugleg, neitað mér um eigin skúffuköku og læti!
Sveinbjörn er svo að spilla mér í dag, held að hann vilji bara búa út í Kína, farin að fá það ískyggilega á tilfinninguna - öss!
En ég hugsa að það verði dugnaður í minni meðan yfirbollan er fjarverandi, bara próteinhristingar og ávextir - finnst ykkur það ekki líklegt? Nei, ég gæti það aldrei ég er of mikill sælkeri. Auk þess finnst mér lífið of stutt til að neita sér um það sem mann langar til! Ég hugsa að ég reyni bara að hreyfa feita rassagatið á mér meira!
Í þeim skrifuðu er ég rokin...

Hafdís skrifaði klukkan 5:05 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli