12.5.04
Það eru HORROR lög í þessari undankeppni. Flestir eru alveg svaðalega falskir og aðrir eru bara hallærislegir. Það reyndar gerir þessa keppni að því sem hún er :)
Reyndar eiga lögin það til að venjast vel en ég hef barasta ekki gefið mér neinn tíma til að horfa á þetta. Horfði reyndar á lögin sem eru nú þegar komin í úrslit í einhverjum spekingaþætti frá Norðurlöndum þar sem Eiríkur rauði Hauksson ofur töffari var okkar framlag! Hann stóð sig reyndar ágætlega og sýndi gamla takta!
Lögin þar voru langt um skárri en þessi hryllingur.
Helmingurinn er náttúrulega stolinn!

Ég hlakka nú samt til á laugardaginn, þó að ég þurfi að horfa á þetta augnayndi aftur. Þá verð ég í góðum félagskap og með skáldmjöðinn mér við hönd.

Hafdís skrifaði klukkan 8:38 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli