13.5.04
Það er erfitt að versla...

Ég skellti mér í byen í dag með vinkonum mínum og við löbbuðum mikið. Þar sem þær eru alltaf ofur skvísulegar lét ég mig hafa það og fór í mestu pæjuskónum mínum. Ég var nokkuð góð svona framan af en um 5 leytið var ég orðin MJÖG þreytt - við fórum held ég um hálf þrjú...Ég var reyndar búin að vera í skónum síðan hálf tvö! Við Eva enduðum svo einar og skelltum okkur í ríkið og svona eftir verslunarleiðangurinn, fannst ekki mikið mál að keyra upp á Lyngháls til að geta hitt Guðnýju - hún gaf mér líka heilan poka svo að ég sé ekki eftir bensínpeningnum þangað ;) Nei, við þurftum að kaupa svona sérdót sem er bara til þar!

Við Eva hvíldum okkur svo í smá stund og fengum okkur að borða og fórum svo aftur til að leita að skóm...ég er ekki nógu pæjuleg samt svo að ég fann enga sem ég tímdi að kaupa mér. Það er erfitt að kaupa skó sem eyðileggja á manni lappirnar fyrir marga marga peninga! Ég vildi að það væri hægt að kaupa svona cover yfir hina skóna sem maður á fyrir - ef ég á svarta skó gæti ég til dæmis sett svona hvítar hlýfar yfir og VOLLA - hvítir skór ;)
Skil ekki afhverju ég er ekki skóhönnuður.

Annars þykist Erna vera eitthvað voða sniðug í dag, getið tjékkað hér!

Hafdís skrifaði klukkan 9:34 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli