|
|||||||||||||||||||
|
11.5.04
Dísa draumur.
Seinustu nætur hafa verið sérlega spennandi hjá mér. Það hefur tiltölulega mikið verið að gerast í kollinum á mér og draumarnir hafa verið skemmtilegir í samræmi við það. Fyrir utan hryllingsmyndina sem ég fékk upp í kollinn í nótt. Í fyrrinótt dreymdi mig að Helgi Skúli, félagi minn úr MS og verkfræðinemi, væri prins og að hann væri að velja sér prinsessu. Þarna voru helstu skvísur bæjarins mættar á svæðið og ætluðu sko að heilla gæjann. Helgi Skúli er lofaður maður en hann mátti ekki velja spúsu sína þar sem hún var með of stutt hár - merkilegt nokk. Ætli það felist einhverjar leyndar þrár í þessu hjá mér, ég hugsa þó að það sé ekki þrá til hans Helga þó að hann sé mannsefni mikið heldur e.t.v einhverjar síðhærðar þrár ;) Í nótt dreymdi mig svo að einhver gömul kona væri að spyrja Davíð Oddson að einhverju og ég var þarna með þeim, ég leysti málið sem á milli þeirra fór með einfaldri lausn. Hún var að velta fyrir sér hvað sjóndaprir gætu gert til að kjósa. Ég sagði henni einfaldlega að þeir gætu fengið starfsmann kjörklefans til að krossa fyrir sig í þann reit sem þeir kysu. Eitthvað fór svarið mitt fyrir brjóstið á Davíð og hann reddist mér eitthvað - veit ekki alveg hvurs vegna. Ég hef reyndar heldur ekki mikið álit á þeim manni og því tók ég þetta ekki mikið nærri mér. Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við yður segi ég nú bara! Hann á það ekki skilið að komið sé fram vð hann af virðingu! Alla vega ekki mikilli! Ég var að fræðast um skipulagsmál á Íslandi rétt í þessu, var að hlýða Sveinbirni yfir. Ég er sem sagt orðin nokkuð klár um hvernig skipuleggja skal svæði og hvernig hin ýmsu svæði eru skipulögð. Reyndar komst ég líka að því að mikið erum skipulagsleysi. Alltaf gaman að læra eitthvað nýtt. Hafdís skrifaði klukkan 10:59 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||