28.5.04
Allar einkunnir þessarar annar eru komnar í hús. Mín gerði sér lítið fyrir og náði öllu, reyndar ekki með alveg jafn miklum glans og hún hefði kosið en þetta gengur víst út á að ná prófunum - það er alla vega betra en að falla. Til þess að komast áfram yfir á annað ár er nauðsynlegt að fá 6.0 í meðaleinkunn úr 5 fögum, samtals 20 einingum. Ég þarf að ná 5 í sumarprófinu mínu til að ná þessari einkunn. Ég ætti að ráða við það en það próf var mjög erfitt núna í vor og ég þarf auk þess að þylja hugtökin upp enn á ný og skila skýrslu svo að þetta verður smá vinna en ég ætti að ráða við það! Þarf að reyna að byrja á þessari skýrslu sem fyrst, nota tímann á meðan ég er ein! Spurning um að nota næstu helgi í þetta!
Ég verð að halda áfram að vinna...

Hafdís skrifaði klukkan 3:30 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli