27.4.04
Það var yndislegur dagur í gær. Mér gekk vel að læra, var bara nokkuð dugleg. Það er voða uppörvandi að sitja út á svölum með sólgleraugu og lesa. Við Sveinbjörn fórum líka snemma á æfingu til að ná góða veðrinu og hún gekk bara prýðilega. Í gærkvöldi var líka skemmtilegt sjónvarpskvöld. Horfðum á the O.C og svo horfði ég á Survivor með öðru auganu á meðan ég skoðaði disk sem fylgdi bókinni minni og er með animations af líffærunum og sjálfsprófi og öðru sniðugu. Að sjálfsögðu horfði ég svo á CSI en það er einn af þeim þáttum sem ég á má ekki missa af. Í seinustu viku sýndu þeir einmitt gamlan þátt án nokkurra skýringa og það kætti mig ekki mikið. Við vorum búin að koma okkur vel fyrir og vorum ekki lítið spennt þegar þáttur sem við höfðum séð byrjaði og það leiðréttist ekkert. Ég sendi skjánum harðorðan póst um þetta en fékk engin svör - frekar lélegt. Ég veit að þetta er ókeypis en það gefur þeim ekkert leyfi til að svindla á okkur. Ég verð líka alltaf jafn pirruð yfir þessu íslandsmeti í lestri hjá Fréttablaðinu. Er ekki eðlilegt að fleiri lesi fréttablaðið en Morgunblaðið þar sem að annað þeirra er ókeypis? Ég fæ það reyndar sjaldnast svo að ég er væntanlega ekki inn í þessari tölu. BULL.
En aftur að gleðinni. Árni hvatti mig til þess að finna út hvað ég væri búin að halda svona síðu lengi úti - ég byrjaði að skrifa um sumarið 2002 þegar ég var að vinna hjá SÍF. Fyrst hélt ég síðunni minni úti á tripod en breytti yfir í blogspot þegar Bergrós nokkur Ingadóttir hélt úti síðu þar. Spurning hvort að hún hafi ekki bara verið frumkvöðull að þessu blogspot æði ;) Hún gafst reyndar upp á því að skrifa fyrir nokkru og ekki lái ég henni það. Það er brjálað að gera hjá henni í úglandinu og verður víst engin breyting þar á fyrr en hún kemur aftur heim í lok sumars.
Síðan mín á sem sagt afmæli í kringum 2.ágúst en það er merkisdagur fyrir mig að mörgu leyti, Árni Pétur frændi minn sem nú er dáinn fæddist á þeim merka degi og bróðir hans og konan hans eiga von á sínu öðru barna 2.ágúst. Mjög sniðugt að ég hafi einmitt byrjað að skrifa á þessum degi.
En jæja, heilinn bíður mín!

Hafdís skrifaði klukkan 11:23 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli