|
|||||||||||||||||||
|
21.4.04
Það ætti að banna lærdóm á svona fallegum dögum, alveg til skammar að hýrast inni í þessum hita og fallega veðri. Það verður bara ljúft að skella sér á æfingu á eftir.
Ég gerði mér lítið fyrir í gærkvöldi og eldaði fyrir tengdamömmu og tilvonandi mág minn. Sveinbirni langaði svo að horfa á fótboltaleikinn og ég ákvað þá að það væri sniðugt að elda bara handa þeim í leiðinni. Við höfðum það sem sagt bara gott í gærkvöldi í stað þess að læra - ég er ekki að standa mig nógu vel í þessum undirbúningi. Líka farin að velta fyrir mér hvort að það sé sniðugt að ætla að lesa trilljón kafla fyrir próf eða hvort sé betra að lesa vel valda kafla og læra bara feitletruðu orðin í hinum og skoða disk sem fylgir bókinni - alveg að hallast að því! Ætli ég heyri ekki bara í proffa vinkonum mínum og spyrji þær ráða. Ég er annars búin að vera ólík sjálfri mér í dag, vaknaði snemma og skellti mér í sturtu og svo hef ég verið alveg sérdeilis hollustuleg í dag. Langar eiginlega bara í eitthvað hollt. Greyið skúffukakan fær alveg að kenna á þessu og er bara borðuð af Sveinbirni. Erna kom reyndar um daginn og reyndi 2 sneiðum ljúflega niður á meðan ég borðaði vatnsmelónu - úff, soldið öfugsnúið :) Í nótt dreymdi mig að ég væri á ferju, í klefa með fullt af öðrum og við Lísa vinkona vorum búnar að stilla klukkuna á eitthvað ákveðið og þegar síminn hans Sveinbjörns pípti í morgun var ég alveg rugluð...svakalegt þegar maður lifir sig svona inn í draumana og er heil lengi að jafna sig! Hafdís skrifaði klukkan 4:56 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||