24.4.04
Sveinbjörn stóð sig vel í að spilla mér í dag. Dró mig í Skipasund til að horfa á Man.Utd - Liverpool og gerði mig vægast sagt brjálaða á meðan leiknum stóð. Fyrir þá sem ekki vita held ég með fyrrgreinda liðinu en hann því síðara auk þess er ég tapsárari en allt sem tapsárt er og því varð ég ekki sérlega ánægð í dag. Sveinbjörn hvatti sitt lið eðlilega áfram á meðan ég hótaði honum öllu illu. Við þekkjumst reyndar það vel að fyrirgefningin var ekki lengi á leiðinni en ég fann blóðflæðið aukast aftur þegar hann fagnaði yfir íþróttafréttunum. Pabbi var reyndar mættur á svæðið þá og því hafði Sveinbjörn sig hægann.

Í kvöld er það bara KILL BILL vol.2 - ég er ekki lítið spennt.

Vona að freknan hérna að neðan hafi glatt ykkur,

Góðar stundir,

Hafdís skrifaði klukkan 7:25 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli