|
|||||||||||||||||||
|
13.4.04
Ég stóð við mitt, ég er byrjuð að læra! Ég er líka á svakalegri ferð, þetta flýgur alveg áfram hjá mér. Tók mig til í gærkvöldi og bjó til lærdómsplanið góða. Eins og er lítur út fyrir að ég standi við fyrstu þrjá dagana á planinu en ég ætlaði mér þrjá daga fyrir síðasta prófið mitt, 4-5 fyrir próf númer 2 og restin af dögunum fer í próf nr. 1 en það er mesta lesefnið fyrir það próf. Sökum heimsku minnar forðum daga fer ég bara í þrjú og tek eitt sumarpróf en í því prófi þarf ég einmitt að læra ljótu hugtökin á ný, gera eitt stykki tilraun og skýrslu í kjölfar hennar og svo kemur prófið góða!
Ég brá á að það ráð að skella mér upp í Lögberg, annað heimili ungfrú Margrétar vinkonu minnar og smitast af lærdómsmóð hennar í stað þess að kúldrast ein heima og eyða tímanum frekar í að taka til, þvo, vaska upp og horfa á sjónvarpið! Já, þetta var sko sniðugt plan hjá mér. Það gladdi mitt litla hjarta mikið að hitta meiri sluxa en sjálfa mig - vinkonur Möggu voru að byrja að læra síðan ég kom hingað en þar áður voru þær að flissa yfir einhverjum lágkúrulegum myndum af horuðum strákum í þröngum búningum á netinu! Ég er nánast sambandslaus við umheiminn, samdi bara í smá stund við Ungfrúnna góðu um að lána mér tölvuna sína! Hún er góð kona! Með þessu kem ég líka í veg fyrir óþarfa hangs á MSN hjá stúlkukindinni en ég hef þurft að fylgjast nokkuð náið með þessari hegðun hennar og hef gert mitt besta til að refsa þeirri hegðun en styrkja lærdómshegðun. Hef til dæmis spurt hana út í námsefnið og annað sem hvetur til náms - já, ég er líka góð kona ;) Vitið þið hvað það er að vera dyntóttur? Ég sagði Sveinbirni að ég yrði örugglega dyntótt þegar ég yrði ólétt, datt þetta í hug í kjölfarið á því að hafa horft á auglýsinguna um greyið manninn sem þarf að fara að kaupa eitthvað handa konunni sinni um miðja nótt þar sem hún er svöng. Finnst líklegt að ég verði svoleiðis...Við áttum miklar samræður um merkingu orðsins dyntóttur í kjölfarið. Mér reynist oft erfitt að útskýra hvað orð þýða - ég veit hvað þau þýða og hvernig á að nota þau en finnst oft erfitt að útskýra með öðrum orðum hvað þau merkja. Annars er ég bara góð! Hafdís skrifaði klukkan 3:01 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||