26.4.04
Ég missti af Kill Bill á laugardaginn sökum þess hvað Íslendingar eru orðnir tímanlegir. Þess í stað varð videóspóla fyrir valinu og þægilegheit hérna í kotinu með Gingu vinkonu og Ingva
Við skelltum okkur svo bara á Bana Bill í gærkvöldi með Evu og Gunna og seinu skötuhjúunum sem boðuðu mætingu kl.19.30 en mættu ekki sjálf fyrr en 19.55 - gott.
Það er ekki hægt að segja mikið um seinni hluta myndarinnar Bana Bill hún er bara SCHNILLD, ekkert annað. Það skyggði þó soldið á myndina hvað poppið var ógeðs salt, ég náði ekki einu sinni að borða helminginn af mínu þar sem ég var farinn að þjást af vökvaskorti - ekki gott. Hvað er það svo að geta ekki fengið sódavatn úr vél þegar maður drekkur ekki gos?
Rugl!

Mæli sem sagt eindregið með þessari mynd og Evu og Gunna sem félögum en síður með Rakel og Himma sökum seinleika ;)

Hafdís skrifaði klukkan 11:44 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli