5.4.04
Ég gleymdi víst að taka fram að árshátíðin var sehr skemmtileg og eiga vinkonur mínar mikinn heiður í því hvað við skötuhjúin skemmtum okkur vel. Við sátum á borði með Ástu, Agnesi, Lilju og Gylfa en þau eru öll með mér í sálfræði og Gylfi er auk þess skýrslufélagi minn! Þau höfðu tekið forskot á sæluna og byrjuðu að drekka fyrir mat :) Við Sveinbjörn þurftum því að ná þeim síðar um kvöldið, ég byrjaði ekki fyrr en eftir mat þar sem ég einbeitti mér að því að borða á mig gat og hafði engan tíma fyrir fyllerí. Eftir að hafa borðað súkkulaðikökuna mína, hluta af Agnesar og látið mig dreyma um kökuna hennar Ástu fór ég á barinn! Það voru svaka tilboð og þar sem ég er alltaf að spara lét ég mig hafa það að drekka bjór, það munaði rúmum þrjú hundruð kalli á bjór og stelpubjór svo að ég sýndi hörku.
Að loknu happdrætti þar sem við Sveinbjörn fórum heim með 3 spólur og miða fyrir tvo í bíó drifum við okkur á dansgólfið og dönsuðum af okkur ýmislegt - ég af mér skóna og eyrnalokk, Sveinbjörn ef sér fötin, Lilja af sér hressleikann, Ásta dansaði aðallega af dansgólfinu en Agnes var hin kátasta og hélt uppi stuðinu.
Ég hitti Ernu sem keppti í IDOL, hún er enn fallegri í persónu en í sjónvarpinu og syngur eins og engill. Við vorum ekki lengi að bonda og líst mér jafnvel og ef ekki betur á stúlkuna núna.
Við Sveinbjörn fórum þó frekar snemma heim þar sem við höfðum samið við móður mína um að sækja okkur. Við erum líka orðin gömul og lúin og þolum ekki skemmtanir langt fram á nótt. Við vorum líka heldur slöpp í gærdag og það varð því ekki mikið úr deginum! Ég er hins vegar öllu hressari í dag, ánægð með sólina og er að reyna að vera dugleg að læra.

Svo byrjar páskafríið formlega eftir hádegi á morgun - víha!

Hafdís skrifaði klukkan 3:33 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli