4.4.04
Fyrsta skipti:

Ég tók strætó á æfingu í fyrsta skipti í gær. Ég fór seinast í strætó þegar ég var pínulítið peð og þá fannst mér það geðveikt spennandi og fannst voða merkilegt að fá að ýta á stopp takkann og var mjög svekkt þegar ég var að fara niður á Hlemm með ömmu og mátti ekki ýta á stopp takkann þar sem strætóinn stoppaði hvort eð er þar :)
Ég fór á fyrstu árshátíðina hjá minni skor í kvöld. Dró Sveinbjörn meira að segja með mér og skemmti mér mjög vel og kynntist skemmtilegu fólki. Alltaf gaman að fara á árshátíð með kærastanum sínum þar sem hann þekkir fleiri en maður sjálfur...
Núna er ég að skrifa inn á síðuna mína í fyrsta skipti drukkin :) og ég efast ekki um að þið hafið gaman af því ;)
Þið heppin að ég er ekki að bulla eitthvað fullt :)

INNSKOT kl.11:45> það er ekki lengur gaman að fara í strætó, ég fékk reyndar heldur ekki að ýta á takkann :(

Hafdís skrifaði klukkan 2:37 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli