28.4.04
Það er svo gaman að vera til þegar veðrið er gott.
Reyndar er alls ekki skemmtilegt að læra þegar veðrið er gott en það er mun skemmtilegra að taka æfingar.
Ég borðaði hádegismatinn minn úti í góðum félagsskap ungfrú Margrétar danadrottningar og Sveinbjörns hins sæta. Við Sveinbjörn vorum sérlega hollustuleg og fengum okkur BOOZT en matseðill Margrétar verður ekki opinberaður hér.
Gestagangnum var þó ekki lokið þá því Eva Mjöll ofurnágranni kom í heimsókn um hálftíma eftir að Margrét rauk út í veður og vind og sat lengi lengi og hámaði í sig jógúrtkökur. Það var mjög gott þar sem þær sem hún borðaði setjast þá ekki á rassinn á mér :)
Mamma bauð svo upp á dýrindis kvöldmat sem toppaði daginn.
Núna þarf ég að fara í sturtu til að þvo af mér skít og svita og svo þarf ég að tækla skemmtilegu,skemmtilegu lífeðlisfræðina þar sem ég tafðist mjög í dag og þarf að vinna upp :)


Hafdís skrifaði klukkan 8:13 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli