13.4.04
Það er erfitt að vera brussa!

-Þá ertu alltaf með ferska marbletti hér og þar um líkamann eftir að hafa labbað á eða rekið þig í hluti sem þú veist að eru á staðnum en gerir þér ekki grein fyrir að þú sért að labba of nálægt þeim.
-þú ert alltaf rennandi blaut eftir uppvaskið þar sem meira vatn fer á þig og upp fyrir vaskinn en ofan í vaskinn og á diskana!
-það er algengt að missa hluti í gólfið
-það að brjóta eitthvað er ekkert nýtt og því fá stell sem eru HEIL
-það kemur ósjaldan fyrir að eitthvað GLEYMIST

Já, það er erfitt að vera ég.
Rétt í þessu rak ég hendina alvarlega í hilluna og fékk bæði sár og fæ trúlega marblett í kjölfarið...

Hafdís skrifaði klukkan 9:17 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli