29.4.04
Í dag er dagur dugnaðar.
Það þýðir að ég verð með nefið ofan í bókunum fram eftir degi og hyggst lítið vafra á netinu!( Sigurjón þegar ég segi vafra meina ég skoða síður sem vinir mínir eiga en ekki eitthvað fólk út í bæ sem telur sig vera frægt).
Ég er að hugsa um að fara út í bakarí að kaupa mér heilsubita í tilefni dagsins og eyða restinni af deginum upp í VRII með eyrnatappa.

Ég finn á mér að þetta verði góður dagur!

Hafdís skrifaði klukkan 12:09 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli