15.3.04
Við Sveinbjörn höfum skemmt okkur yfir háhraða á Huga seinustu daga. Ég vissi ekki að þeir væru með svona fyndnar klippur fyrr en í seinustu viku og síðan þá höfum við dundað okkur við að horfa á þetta yfir hádegismat og öðru slíku. Við Sveinbjörn höfum mikið verið að þræta yfir einu myndbandi sem heitir ,,Þyngdaraflið virðist ekki virka í þessum sal." Ég trúi nefnilega ekki öllu sem ég sé þar þó að þetta sé dýnugólf. Sveinbjörn er samt meira auðtrúa en ég og finnst þetta ótrúlega flott. Ég trúði reyndar stærri hluta þegar ég horfði á það aftur en alls ekki öllu. Ef þetta gerðist allt eru þessir gæjar bara alveg ótrúlegir! Svona hlutir koma alla vega ekki fyrir á fimleikamótum í sjónvarpinu.

Ef þið viljið tjá ykkur um þetta getið þið skoðað umrætt myndband hér

Hafdís skrifaði klukkan 4:07 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli