10.3.04
Við erum að tala um dugnað!
Lærði frá 8 - 9:30.
Ég var mætt niður í Laugardag kl.tæplega 10 í morgun - frekar hress. Skokkaði og tók svo nokkra spretti niður,beint og upp brekku allt í sama hringnum! Ég þarf ekki að hafa mörg orð um bleytuna sem fylgdi á eftir - nóg að segja að fötin mín vógu rúm 5 kíló og samt var ég ekki í mörgum fötum. Brá á það ráð að vera í tvennum hlaupajökkum yfir þunnum dry-fit bol og kom það sér vel - mér varð ekki kalt, bara blaut en ekki eins og ég hefði verið ef ég hefði verið í flíspeysu eða bómull innan undir. SNILLD.
Fór svo í mission making Hafdís pretty kl.12 og var sem ný kl.14.
Fór svo að gera verkefni og verklegur tími þar af eftir þar sem ég fékk rafertingu í kálfann og högg á hásinina. Já, það er erfitt að vera í sálfræði - andlega og líkamlega.
Núna er ég að fara í mat til tengdó - bara pabba hans Sveinbjörns og konunnar hans :)

Later,

Hafdís skrifaði klukkan 6:56 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli