26.3.04
Vá, hvað ég er þreytt!
Við Sveinbjörn keyptum okkur rúm í sumar á spottprís. Undanfarið hefur rúmið verið að trufla okkur soldið þar sem það brakar í gormunum þegar maður snýr sér og það brakar það hátt að við vöknum bæði við það. Um daginn áttuðum við okkur á því að ef að yfirdýnan er ekki alveg bein þá brakaði ekki í rúminu. Samt asnaðist ég til að laga yfirdýnuna um daginn og því vöknuðum við hress í morgun kl.6.30 og reyndum að koma yfirdýnunni í samt lag bæði jafn geðstirrð og sæt en það gekk ekkert hjá okkur og þá var bara ákveðið að sofa án þess að snúa sér. Það gekk upp í fyrstu en ég snéri mér svo bara ofur varlega þannig að það kæmu ekki jafn mikil læti. Síðar um nóttina og um morguninni tók Sveinbjörn samt upp á því að hrjóta og þá var sko ekki kátt í höllinni. Ég nennti ekki að ýta í hann þar sem hann hefði vaknaði við allt brakið og bramlið og því lét ég mig bara hafa það.
Dreif mig svo á fætur myglaðara en allt í heimi hér um hálf tíu til að fara að gera verkefni í tölfræðiforritinu SPSS, ég er nefnilega að fara í próf kl.12.

Í dag eftir próf ætla ég svo að hringja í ljótu búðina sem seldi okkur rúmið og kvarta og vera alveg brjáluð því að ég get ekki sofið í svona hávaða.

Þetta kennir manni kannski að eyða frekar mörgum peningum í betri búð en að spara og kaupa ódýrara rúm í búð sem heitir Rúmgott - lofar ekki góðu!


Hafdís skrifaði klukkan 10:03 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli