|
29.3.04
Stend í ströngu við að afla heimilda í ritgerðina mína og lesa þær svo að ég geti pússlað henni saman í kvöld. Hressandi mjög. Einnig stend ég víst í ströngu við að keppa við vini mína um sumarstörf, gott að geta hjálpað vinum sínum til frama - reyndar ekki gott fyrir mig ef ég stenst ekki samanburð! Komst að því að umsóknirnar mínar hafa ekki borist öllum og stend því í ströngu við að athuga hvert þær bárust.
Hér eftir ætla ég ekki að ljóstra upp hvar mér dettur í hug að sækja um störf.
Annars er ég búin að fá tvö tilboð og er vongóð um það þriðja.
Hafdís skrifaði klukkan 4:43 e.h. |
|