5.3.04
Ski ekki hvernig fólk tímir að fara til útlanda, veðrið á Íslandi er svo spennandi. Maður veit aldrei hvað maður fær. Ég fór á æfingu í glampandi sólskini í gær, þegar ég var búin að skokka var orðið skýjað og á meðan ég drillaði var grenjandi rigning - það mikil að það var ekki þurr þráður á mér og svo þegar kom að hlaupunum sjálfum birtist sólin á ný og lét eins og ekkert hefði í skorist , druslan sú arna. Ég fyrirgaf henni sko ekkert að koma svona með rigningu og var bara fúl og svekkt og leit ekki einu sinni á hana!

Hafdís skrifaði klukkan 10:20 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli