|
5.3.04
Nú er það komið á hreint að ég verð ekki flugfreyja þetta sumarið. Get ekki sagt að það komi mér á óvart þar sem viðtalið fór ekki eins og best verður á kosið. Það er nokkuð ljóst að ég þarf að vinna mikið í tungumálakunnáttu minni ef ég hyggst reyna við þetta starf síðar.
Ég frétti reyndar líka í dag að það verður 6 vikna námskeið frá 9-5 sem byrjar á mánudaginn og ég get ekki misst svo mikið úr skóla. Ég hefði örugglega þurft að segja nei ef ég hefði fengið starfið af þessum sökum...
Nú er bara að vona að einhver aumki sig yfir mig og ráði mig...
Hafdís skrifaði klukkan 4:27 e.h. |
|