|
|||||||||||||||||||
|
1.3.04
Mér finnst ótrúlegt að hugsa til þess að það séu liðin 23 ár síðan ég fæddist. Finnst ekki svo ýkja langt síðan ég stökk upp úr rúminu eftir slitróttan svefn á afmælisdegi mínum til að athuga hvort ég væri búin að stækka til að geta sagt ömmu það þegar hún hringdi. Ég man líka eftir afmælisdeginum þegar ég fékk NINTENDO tölvuna mína. Þá svaf ég mjög lítið og sá að það var lítill sætur pakki á gólfinu í herberginu mínu en ég beið með að opna hann þangað til klukkan var orðin 6. Þá sá ég að þar var sjampó og hárnæring og miði sem á stóð að raunverulega gjöfin mín væri inn í fataskáp fram á gangi. Ég fór aðeins upp í rúm og melti hvort ég ætti að opna hana strax, náði að tefja það í smá tíma en dreif mig svo fram úr til að sækja gjöfina og þurfti að hemja öskrin þegar þessi dýrð kom upp úr pakkana. Ekki nóg með að mig hafi dreymt um leikjatölvu heldur var þetta líka tölva fyrir 4 spilara og það var sko flottara! Ég man líka eftir afmælisdeginum sem ég hafði skipulegt til þaula þar sem keppt var í alls kyns greinum sem við Ellen vinkona vorum búnar að æfa okkur á - mjög gott. Verðlaunin voru svo öll eins fyrir greinarnar - PK tyggjó. Hugmyndaflugið alveg að drepa mig!
Ég man líka eftir því þegar allur skólinn fór á skauta á afmælisdaginn minn. Í gegnum tíðina hefur mjög oft verið gott veður þann dag og því oft mikið brallað. Reyndar man ég líka þegar það var brjálað veður og ég fékk skóflu í afmælisgjöf og gestirnir þurftu að moka sig inn um hurðina. Eitt hefur samt alltaf tíðkast - það var alltaf mikið fjör í Hamrahlíð 16 á Vopnafirði þegar ég átti afmæli! Mamma er þvílíkur bakarameistara og hálfur bærinn mætti í kaffi! Síðan ég flutti í bæinn hefur aðeins hægst á afmælisveislunum mínum en engu að síður finnst mér alltaf gaman að eiga afmæli - ætli það sé ekki vegna þess hversu athyglissjúk ég er og hvað mér þykir gaman að vera miðdepill athyglinnar - jú, það er þess vegna ; ) Já, það er gaman að eiga afmæli! Hafdís skrifaði klukkan 3:11 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||