|
|||||||||||||||||||
|
2.3.04
Ljúfa líf
Þegar Erna var búin að drepa mig með því að láta mig skokka hratt í 20 mínútur - ég skil nefnilega ekki hvers vegna fólk skokkar hratt í 20 mínútur því þá tapar það bara - gæti skokkað hægt og ekki þurft að fara jafn langt - og þegar ég var búin að drepa sjálfa mig með 10x100 brunaði ég heim á leið og þá beið mín dýrindis kjúklingaréttur, hvítvín og kertaljós. Hann Sveinbjörn minn var búin að vera svona myndarlegur og svo stjanaði hann við mig í allt gærkvöld þessi elska. Ég hafði það sem sagt bara gott og fékk súkkulaðiköku í eftirmat sem var að sjálfssögðu hituð inn í örbylgju ; ) Við sváfum síðan fram eftir enda bæði þreytt eftir amstur helgarinnar! Ég var líka í fullri vinnu í gær við að reyna að svara skilaboðum og hamingjuóskum sem mér bárust en ég held að ég hafi ekki náð að svara helmingnum - frekar léleg. Ég er bara ekki nógu klár á nýja símann minn ennþá og er því helmingi lengur að pikka inn skilaboð - sem sagt svona svipað lengi og fljótasti strákur! Ég fékk nýjan 3200 sem ég er ekki lítið ánægð með þar sem minn gamli var alveg að syngja sitt síðasta og var mest hrifinn af því að verða batteríslaus í hvert einasta skipti sem einhver hringdi í mig - sem sagt einu sinni á dag ; ) Hann er afspyrnu fallegur þessi elska og mér þykir ekki mikið leiðinlegt að vera með myndavél í símanum mínum. Síðan fékk ég blóm og konfekt og afspyrnu fallegan augnskugga sem á áreiðanlega eftir að prýða mig í ófá skipti. Ég gleymdi alveg að fá mér bjór í gær en Sveinbjörn reddaði því fyrir mig! Hugsa að ég haldi bjórdaginn bara frekar hátíðlegan á föstudaginn! Annars líst mér ekkert á veðurspánna fyrir kvöldið, það á víst að vera þvílíkur stormur um það leiti sem ég þarf að skokka úti - hvers á ég að gjalda! Vil ekki að Þráinn þjálfari skammi mig aftur fyrir að mæta lítið á æfingar - mér finnst ekki gama að fá skömm í hattinn og þarf iðulega að vanda mig við að fara ekki að grenja þegar það gerist en ég stóðst prófið í gær og bar mig bara illa og sagðist ætla að bæta mitt ráð og svo var ég ofur dugleg! Hann reyndar fylgdist með öllum mínum hreyfingum og því gat ég ekki annað! Já, ég þarf að hafa svolítið aðhald ; ) Mér þætti vænt um að einhver myndi vilja ráða mig í vinnu í bráð, ég er orðin dáldið stressuð yfir þessu öllu saman. Best að ég sæki um nokkrar í viðbót... Hafdís skrifaði klukkan 11:40 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||