30.3.04
Hollustudagurinn í gær gekk ekki alveg upp hjá mér. Var búin að ákveða að vera þvílíkt dugleg að borða bara hollt í gær og þar átti skyr að vera í aðalhlutverki. Ég klikkaði strax í hádeginu þegar Sveinbjörn dró mig í langloku - þó með kjúklingaskinku og hollustusósu. Fékk mér svo skyr um miðjan dag og vorrúllur í kjölfarið. Um kvöldið gladdist Sveinbjörn mjög yfir tilboði frá Mastercard sem hljóðaði upp á 50% afslátt af Dominos pizzum - já, spilling í gangi. Í eftirrétt borðuðum við svo Nóa-kropp.
Veit ekki hvernig fer með hollustudaginn í dag, er með afganginn af pizzunni í nesti en reyndar með skyr og bollasúpu líka! Vonum bara það besta!

Annars er það bara ritgerð og ekkert múður. Búin að eyða allt of miklum tíma í þetta - gildir bara 5% og því ætla ég bara að skrifa eitthvað niður á blað í dag!

Held að það sé ekkert fleira í bili.

Jú, ég komst að því í morgun að Erna vinkona mín er líklega mjög gáfuð :)

Hafdís skrifaði klukkan 11:06 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli