28.3.04
Góðan daginn góðir hálsar.

Ég get ekki líst vonbrigðum mínum með veðrið úti, langar mest að grenja en finnst ég alveg búinn með minn skammt af því í þessari viku :)
Ég íhugaði mikið að kíkja út á lífið í gær eftir að mér var boðið í partý en það gerist jú ekki á hverjum degi...Eftir að hafa eytt rúmlega klukkutíma í að ákveða það var ég orðin svo þreytt að ég ákvað bara að fara að sofa. Já, aldurinn er sko farinn að segja til sín.
Ég svaf eins og ungabarn þangað til kl.6:27 í morgun þegar einhver flutningabílstjóri ákvað að hafa bakkhljóðið á bílnum sínum í gangi í svona 5 mínútur. Ég var svo rugluð á þessum tíma að ég gerði mér fyrst ekki alveg grein fyrir því hvaða hljóð þetta væri og ætlaði að fara fram til að athuga hvaða dót sem við ættum væri að gefa frá sér þetta hljóð en áttaði mig þegar ég var búin að standa upp. Alveg notalegt að vakna svona hálf sjö á sunnudagsmorgnum.
Ég var letibrók í gær og féll fyrir brögðunum í Ernu og fór með henni í SMÁ stund í sund. Fórum kl.13 og komum ekki tilbaka fyrr en 16 - ótrúlegt hvað hún endist í pottununum stelpan...
Við Sveinbjörn grilluðum okkur dýrindis lambafillét í gær og höfðum alls kyns meðlæti og horfðum svo á Master and Commander - ég reyndar bara með öðru auganu þar sem ég er yfirleitt ekki mjög hrifin af blóði og bardögum. Gat horft á atriðin þess á milli!

Vona að allir hafi skemmt sér vel í gærkvöldi!

Mín bíður ritgerð um notkun dýra í tilraunum og svo leikur kl.14:50 - vonum að Man.Utd hafi tekið sig saman í andlitinu og að Arsenal tapi fyrsta leiknum sínum í ár - það væri ljúft!

Áfram Manchester United....

Hafdís skrifaði klukkan 11:21 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli