18.3.04
Ég var alveg að klepra í dag þegar ég var búin að vera rúma 2 tíma með sama dæmið í aðferðafræði. Búin að prófa trilljón aðferðir, hringja í Sveinbjörn og spyrja Ívar á netinu þar sem hann er nú þegar búin að læra þetta. Ég var alveg að tapa mér. Rétt eftir 4 áttaði ég mig á því hvernig ætti að leysa dæmið og gat tekið gleði mína á ný. Af þessu sannfærðist ég endanlega um að verkfræði væri ekki eitthvað fyrir mig :)

Við Sveinbjörn gerðum okkur svo dagamun eftir æfingu og kíktum aðeins í Kringluna. Þar fann ég forlátar! svartar VÍÐAR buxur og flottan bol í Vero Moda á aðeins 3500 krónur samtals! Sem sagt mjög gott ;)
Núna er ég að horfa á Bachelor með öðru auganum og leysa dæmi með hinu og drekka Eplacider með - gott fyrir svefninn :)

Hafdís skrifaði klukkan 10:12 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli