|
|||||||||||||||||||
|
22.3.04
Ég tók alveg svaðalega vel til í íbúðinni á laugardaginn að annað eins hefur vart sést. Við erum að tala um skúringar og flísapússun, röðun í hillur og skápa og bara allt heila klabbið. Enda er þessi elska eins og ný.
Það er heldur mikið að gera hjá mér í skólanum þessa dagana. Fer í próf á miðvikudaginn, föstudaginn og á að skila ritgerð á þriðjudaginn ásamt því að fara í könnun og svo er verklegt og bara fjör. Ágætt fyrir mig að hafa mikið að gera því þannig vinn ég best - það er undir álagi. Ég er ennþá í góðum gír eftir seinustu viku þar sem lærdómur var ofarlega á listanum. Gekk ágætlega í prófinu sem ég fór í á laugardaginn og bíð úrlausnarinnar spennt - verð samt örugglega hætt að vera spennt eftir mánuð þegar einkunnirnar koma. Já, hlutirnar gerast hratt í HÍ. Það var fjölmennur mótmælafundur fyrir utan Aðalbyggingu í dag - ég var mjög ánægð með það. Gat reyndar ekki mætt sjálf þar sem ég þurfti að keyra Sveinbjörn í vinnuna. Hann er meira þar en heima hjá sér þessa dagana. Fer á morgnana og kemur seint á kvöldin. Góð æfing fyrir mig áður en hann fer til Kína... Hvernig er annars stemningin? Hafdís skrifaði klukkan 3:52 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||