5.3.04
Ég skemmti mér ljómandi vel yfir þessu í morgun:

Sigurjón var eitthvað að tala um að hann væri meira en til í að þvo þvottinn bara fyrir þig. Hann sagðist meira að segja geta sótt hann til þín og skilað honum líka. Þú bjallar bara á hann.
Árni 12.12

Árni er eitthvað að misskilja sko, mamma hans bað mig nefnilega um að fara með nærbuxurnar hans í efnalaugina því það væru svo rosaleg bremsuför á þeim, hún réði bara ekki við það. Þessvega tók ég þvotinn hans þarna einu sinni...
Sigurjón 3.02

Og þegar Sigurjón segir bremsuför þá á hann ekki við nein bíla-bremsuför nema ef það eru til brún dekk sem er ekki kúl. Eitthvað sem Saab myndi kannski gera en ég ek náttlega um á Volvo. Þó að ég bremsi í buxurnar mínar þá varstu samt að tala um að þú gætir farið með þvottinn hennar. Og já á meðan ég man Sigurjón. Þessi belgíski bóndi sem þú pantaðir þér á netinu... er hann kominn? En ég er ekki alveg svo viss um að ég ætli með ykkur í bláa lónið. Þið viljið ábyggilega vera tveir einir.
Árni 3.05

Hann kemur á laugardaginn. Það er ekkert pláss fyrir hann hérna sko þannig að ég er búinn að tala við mömmu þína og pabba um að hann gisti heima hjá þér. Svo ætlar hann líka að læra HTML af þér þannig að hann verður mest megnis heima hjá þér...
Sigurjón 3.11

Kúl. Var einmitt að vonast til að fá hann til mín. Vildi bara ekki vera dónalegur. Þannig að jesssss. Ert þú fíflið sem ert alltaf að kjósa Skítamórals lagið á Popp Tíví því þú vilt sjá kjánann sem þú fórst í bað með?
Árni 3.12

Nei, ég er að því til að sjá mestu mellur íslands í mjólku-bað-slag
Sigurjón 3.22

Ég er að reyna að kjósa þarna Falkaner gaurinn eða hvað sem hann heitir. Gengur illa þar sem ég borðaði óvart símann minn.
Árni 3.29

Er hægt að segja eitthvað annað?



Hafdís skrifaði klukkan 1:33 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli