5.3.04
Ég lifði matarboð mafíunnar af í gær. Ég segi mafíunnar af því að það tók svo langan tíma að samþykkja mig. Eins og mér er einni lagið eignaðist ég strax tvo vini. Eina stelpu sem er 2 og hálfs mánaðar og einn strák sem er 4 ára. Svo var reyndar einn maður þarna sem er aðeins undir meðalgreind sem var líka sérlega hrifinn af mér! Hann var sérlega hress og sagði mér margar skemmtilegar sögur! Til dæmis söguna af því hvernig hann og konan hans föttuðu eftir 3 mánuði að hún væri ólétt. Hvernig veðrið var þegar barnið fæddist. Hvernig íbúðin þeirra væri. Hvað allt hefði lamast í vinnunni hans þegar hann fór í feðraorlof og margar aðrar stórskemmtilegar.
Ég skemmti mér sem sagt konunglega. Það er svo gaman að vera svona settlegur og sætur í marga klukkutíma og segja sömu sögurnar aftur og aftur. Ég er í sálfræði, við kynntumst á háskólaballi fyrir rúmlega tveimur árum. Foreldrar mínir búa í Skipasundi. Ég bjó á Vopnafirði í 16 ár og er ættuð þaðan og af Vestfjörðum, úr Önundarfirði.
Ég var sem sagt búin að gleyma hvað fjölskylduboð eru skemmtileg. Ekki misskilja mig ég hafði mjög gaman af því að hitta þennan hluta fjölskyldunnar - það er alltaf skemmtilegt að kynnast nýju fólki en...fjölskylduboð, fermingarveislur, jólaboð - þetta er allt saman voðalega lítið skemmtilegt!
Mér finnst betra þegar minni hluti fjölskyldunnar hittist þar sem maður þekkir alla voða vel og þarf ekki að vera með svona kurteisissamræður.

Hafdís skrifaði klukkan 10:27 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli