16.3.04
Ég hljóp inn í Odda á slaginu 10, prentaði ritgerðina mína út og hljóp niður í kjallara til að skila skýrslunni. Kassinn sem átti að skila í var horfinn og því þurfti ég að brosa mínu blíðasta til að fá að skila aðstoðarkennurunum skýrslunni. Þeir voru þó ekki með nein leiðindi en spurðu hvað við værum að pæla...
Ég þarf svo að fara að hugsa mitt ráð og hætta að gera alla hluti á síðustu stundu!

Hafdís skrifaði klukkan 12:36 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli