|
|||||||||||||||||||
|
23.3.04
Ég henti langlokunni minni um hugtökin út - ekki einu sinni ég nennti að lesa þetta :) Annars gengur bara ágætlega að læra þetta utan að. Sveinbjörn hlaut það vafasama hlutskipti að hlýða mér yfir í dag - heppinn! Það fyndna við þessi hugtök er að það eru 90% líkur á því að skilgreiningin byrji annað hvort á Áreiti eða atburður eða Þegar... mjög gott. Hjálpar manni mikið.
Nýja drykkjarjógúrtin með karamellubragðinu er mjög góð að á bragðið að mínu mati. Vara þó Ernu við að smakka hana þar sem hún inniheldur of margar kalóríur og sykur fyrir hana og er því algjört sukk. Hún minnir mig á engjaþykkni með karamellu og súkkulaðimúslí sem er náttúrulega bara góð :) Ég sýndi snilli mína í kvöld og eldaði dýrindis eggjanúðlur handa okkur skötuhjúum. Þær eru helmingi betri en venjulegar núðlur og því var þetta sérlega gómsætt. Er barasta ekki búin að baka neina köku í þessari viku og telst það til tíðinda. Bætti vini mínum Steingrími a.k.a Glúbba inn í tenglana. Hann er góðvinur minn frá Vopnafirði og ég komst ekki að því fyrr en um daginn að hann væri með síðu. Hjá mér er hann í flokk með ekki ómerkari mönnum en Sigurjóni og Árna - einhver sem ég get alltaf hlegið að :) Þarf að skilgreina aðgreiningu og alhæfingu, slokknun og annað merkilegt. Later, Hafdís skrifaði klukkan 10:30 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||