|
|||||||||||||||||||
|
10.3.04
Ég er vöknuð! Þessi setning hljómaði í eyrum móður minnar á hverjum degi í langan tíma þegar ég var lítil. Í kringum 9 leytið á hverjum morgni hringdi ég í hana, 7 ára hnáta, og tilkynnti henni um vöku mína. Í seinni tíð hef ég nokkrum sinnum tekið upp á þessari hefð minni, bara til að minna móður mína á hvað ég var yndislegt barn! Ég man ekki hvað það er langt síðan ég var vakandi kl.7.30 en ég get lofað ykkur því að það eru talsvert langt síðan.
Á það-sem-ég-á-eftir-að-gera listanum í dag er eitt stykki æfing fyrir hádegi, tilraun, sturta, lærdómur, mission making Hafdís pretty og þar sem ég ofmetnast alltaf við gerð svona lista 5 atriði til viðbótar og þetta á allt að gerast fyrir kl.4 því að þá fer ég í verklegan tíma til kl.19 og þá er matarboð hjá tengdapabba og konunni hans. Af slæmri reynslu veit ég þó að ég næ aldrei að gera þetta allt á einum degi en ég ætla að leyfa mér að halda það svona fram eftir degi - ég þyrfti nefnilega nauðsynleg á því að halda að tíminn liði ekki alltaf svona hratt. Hann mætti hins vegar líða soldið hraðar þegar mér leiðist - þá mjakast hann bara áfram! Ég er strax farinn að hlakka til að fara á æfingu út í þessu yndislega veðri, ég verð ekki bara blaut inn að beini! Hvenær ætli Egilshöllin opni? Hafdís skrifaði klukkan 7:38 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||