|
|||||||||||||||||||
|
25.3.04
Ég biðst velvirðingar á biturðinni hér að neðan. Þurfti bara aðeins að koma þessu frá mér strax eftir prófið þegar mér fannst ekkert réttlæti vera til í heiminum og að Heimski Hans hefði virkað gáfaður í minni nærveru. Ég er hins vegar búin að sjá ljósið með hjálp foreldra minna og þolinmóðra vina og sætti mig hér með við að vera lélegur páfagaukur. Mörgum kæmi það þó ekkert á óvart að fiskar væru lélegir páfagaukar en ég taldi mig reyndar vera sterkari en raun bar vitni.
Núna er ég allt að því sæl með þetta því að það er ekki hægt að kvarta yfir því að fara bara í þrjú próf og losna við eitt stykki lesfag - nú er bara einni færri bók að lesa í páskafríinu og því auðveldara að skipuleggja og það fer mér einmitt vel úr hendi en verr að halda því skal ég segja ykkur. Sveinbjörn er löngu búin að ákveða að taka eitt sumarpróf þar sem að hann átti alltaf eftir eitt fag og því getum við skötuhjúin bara dundað okkur við að læra undir prófin okkar tvö í sumarbústað einhvers staðar í fjarska eins og við gerðum forðum daga þegar við fórum í þetta helvíti sem sumarpróf kallast. Ég er búin að vera að hlægja að því að páfagaukasluxinn í mér hafi fellt mig á einu svona prófi þar sem ég hélt að menn yrði ekki færir í sínu fagi á því að kunna utan að heldur með því að skilja og kunna að nota þekkinguna. Sér í lagi finnst mér sniðugt að þetta hafi verið í Greiningu og mótun hegðunar og nokkuð ljóst að þeir sem brilleruðu á prófinu verða betri greinendur en hinir þar sem þeir muna allt sem þeir lærðu utan að þrátt fyrir að hafa lítið skilið og geta nýtt sér þá þekkingu í framtíðinni - æ, nú er ég aftur orðin bitur. Held að ég sé búin að losa of margar færslur frá Ívari undanfarið. Best að drífa sig í rúmið, tími kl.8 í fyrramálið. Góða nótt, Hafdís skrifaði klukkan 12:21 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||