|
|||||||||||||||||||
|
2.3.04
Það er ógeðis veður úti. Í svona veðri nennir maður ekki að gera neitt og því var svo sem alveg ágætt að vera bara hálf lasin í dag. Ég er komin með kvef og er rám og líður ekkert svakalega vel! Samt hafði ég það af að baka einn heitan rétt og eina súkkulaðiköku áður en tengdamamma og tilvonandi mágur minn komu í heimsókn, pabbi og Sæunn fréttu síðan af veigunum og voru ekki lengi að láta sjá sig! Já, lyktin berst langt þó að það sé rigning.
Við, Sveinbjörn, eyddum samt mest öllum deginum í að reyna að tengja fartölvuna við sjónvarpið svo við gætum horft á myndirnar sem hann er búin að vera að downloada í betri gæðum. Hann keypti eitthvað S-video tengi til þessa en það virkaði ekki betur en svo að myndin er svart/hvít í sjónvarpinu og hljóðið kemur bara úr tölvunni. Hann sagði samt köllunum í búðinni hvað hann ætlaði að gera en þeir föttuðu ekki að segja honum að hann þyrfti aðra snúru fyrir hljóðið og að í raun væri sniðugra fyrir hann að kaupa eitthvað rca tengi eða eitthvað álíka til að ná myndinni í lit. Létu hann sem sagt kaupa scart tengi sem var víst ekkert voða sniðugt! Þetta er í raun allt latína fyrir mér og því skil ég sjálf ekkert í því sem stendur hér að ofan - humm, hvers vegna var ég að skrifa það...gott etta. Ég fór sem sagt ekki á æfingu í dag - bakaði bara í staðinn - líka mjög gott! Afgangurinn af sænsku súkkulaðikökunni rann líka svona ljúflega niður og núna er ég búin að baka aðra! Þetta verður sem sagt góð vika! Þeir sem eru ekki að hugsa um línurnar eða þurfa þess ekki eru sem sagt meira en lítið velkomnir í heimsókn á næstu dögum ; ) Hafdís skrifaði klukkan 11:05 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||