13.3.04
Aukaorð.

Fljótlega eftir að ég byrjaði með Sveinbirni fór hann að gera mér lífið leitt varðandi aukaorð, eða þagnarkítti eins og kennararnir mínir í tjáningu og samskiptum kalla það. Þetta eru orð eins og þú veist, og, sko, því og svo mætti lengi telja sem fólk notar iðulega þegar það er að hugsa hvað það eigi að segja næst. Í rauninni er eðlilegt að þegja bara á meðan leitað er að réttu orðunum eða hugsununum en margir velja að segja þú veist í staðinn fyrir að þegja og í þessum hópi var ég. Eftir að hann fór að benda mér á þetta er ég orðin frekar meðvituð þegar fólk notar þessi orð og þau eru farin að fara í taugarnar á mér. Sér í lagi hjá fólki sem notar þau sérlega mikið.

Ég fór að hugsa um þetta fyrr í kvöld þar sem vinafólk okkar var í heimsókn og þau hafa bæði notað þú veist mikið. Sveinbjörn benti honum á að hann væri búin að segja þú veist 9 sinnum í einni sögu og eftir það var ekki aftur snúið hjá honum. Hann fór að vanda sig við að tala og reyndi í raun að draga úr frásögnunum því að þetta er sérlega ergilegt. Þegar einhver bendir manni á þetta getur maður ekki að því gert að fara að hugsa um þetta.

Þetta er í raun eins og að segja ekki horfa þangað því að þá er manninum eðlislægt að líta akkúrat í þá átt. Það er spennandi að gera það sem ekki má! Reyndar finnst mér ekki mikið spennandi að gera það sem ekki má ef það er ólöglegt en það er önnur saga.

Því vil ég spyrja ykkur. Notið þið aukaorð mikið? Ef já, hvaða orð notið þið þá? Ef nei, GOTT HJÁ YKKUR!

Fyrirgefið mér fyrir að hafa bent ykkur á þetta og orðið með því jafn pirrandi og Sveinbjörn. Ég get hins vegar lofað ykkur að þetta er af góðmennskunni einni saman!

Góðar stundir,

Hafdís skrifaði klukkan 2:07 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli