22.3.04
And the dugnaður continues...

Tók svaka æfingu áðan og hef barasta ekki verið borubrattari síðan ég var mjó! Var alveg að fíla mig á fínu gaddaskónum mínum og fannst ég spýtast áfram. Reyndar finnst manni maður yfirleitt hlaupa hraðar þegar maður er einn en undir lokin fékk ég smá keppni sem hélt mér á tánum. Var að vísu að hlaupa með einni 16 ára skvísu og ég held að hún hafi ekki þorað að taka fram úr mér af virðingu við mig - þessi elska. Hún er líka vinkona systur minnar og hefur viljað hafa mig góða :) Ég þurfti reyndar að taka á honum stóra mínum til að hafa hana og hafði svo gott af því.
Ég er reyndar mjög þreytt í kálfunum núna enda ekki vön að taka tvær æfingar á dag.

Líður samt svo vel núna...

Hafdís skrifaði klukkan 9:35 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli