|
14.3.04
Afhverju sýna þeir alltaf bara hluta af Pepsi-auglýsingunni núna? Hún er miklu betri þegar hún er sýnd öll. Verst hvað Britney kemur illa út í samanburði við hinar.
Ég er samt mjög ánægð með þessa auglýsingu. Þær eru allar mjög flottar og góðar fyrirmyndir holdafarslega séð, enginn af þeim er horrengla og það var alveg kominn tími til að fyrirmyndir með smá hold utan á sér kæmu fram á sjónarsviðið. Nú bíðum við bara eftir því að fyrirsætubransinn taki við sér og komi fram á sjónarsviðið með 10kg þyngri fyrirsætur!
Hafdís skrifaði klukkan 12:34 e.h. |
|