|
|||||||||||||||||||
|
1.2.04
Til hamingju með 25 ára afmælið Begga!
Hún hélt hins vegar upp á það í gær og var mikið gaman og mikið grín. Það er orðið nokkuð langt síðan ég hló svona svakalega mikið. Fékk meira að segja harðsperrur í magann og allt ;) Reyndar voru nokkuð margir brandararnir á minn kostnað en ég hló bara að þeim líka - maður verður jú að hafa smá húmor fyrir sjálfum sér. Mér fannst nú samt ekki allir fyndnir! Sveinbjörn hitti annars jafnoka sinn í gær. Kærasti einnar þarna gerir jafn mikið grín að henni og Sveinbjörn af mér. Reyndar áttum við mjög margt sameiginlegt á báða bóga. Hún er soldil brussa eins og ég og tókst að brjóta einn disk! Hann elskar kvikmyndir og veit endalaust um þær alveg eins og Sveinbjörn. Þeir voru báðir í versló og við vorum báðar í MS. Hún er reyndar ljóshærð voða sæt með spékoppa en ég er ekki alveg þannig eins og þið vitið. Reyndar kann kærastinn hennar að elda voða vel og eldar alltaf en sumir sem ég þekki vita varla hvar pottarnir eru geymdir. Ég vona bara að Sveinbjörn og þessi Bragi verði góðir vinir svo að Sveinbjörn læri að elda! Það yrði mjög indælt. Þó að mig dreymi um að verða jafn myndarleg og mamma mín hef ég engan sérstakan áhuga á því að elda á hverjum degi í 40 ár. Við sýndum miklar tillitsemi þegar við komum heim í gær og lögðum í smá fjarlægð frá húsinu. Kl. var að verða 1 og því örugglega margir farnir að sofa. Á þessum 50 m fundum við hins vegar út að það voru 5 partý í gangi í húsunum í kring og þegar við vorum komin inn heyrðum við að nágrannar okkar í 202 voru líka með partý. Við gátum sem sagt ekki farið strax að sofa. Ég tók líka eftir því að voða flottum Nissan Patrol var lagt hérna fyrir framan húsið. Eigandinn hafði meira að segja haft fyrir því að bakka honum í stæðið! Kl. hálf níu í morgun ákvað svo þessi jeppakall að fara og var með bílinn í gangi hérna fyrir utan all lengi, þurfti að gefa honum soldið inn og svona svo að það dræpist ekki á honum. Þetta endaði náttúrulega með því að við fengum þessa dýrindis olíulykt beint inn í svefnherbergi þar sem við sofum alltaf með gluggann opinn. Sérlega huggulegt af honum. Mjög sniðugt að bakka bílnum þannig að púströrið snúi að svefnherbergisgluggum hjá fólki! Ég er samt mjög þakklát fyrir vegalengdina á milli okkar og Hallgrímskirkju, ég heyri smá óm af kirkjuklukkum en ekkert sem drepur mig. Þeir virðast heldur ekki hringja bjöllunum á 5 mín fresti í svona 5 mín eins og félagar þeirra í Breiðholti og Langholtskirkju! Ég trúi því nefnilega að þeir sem ætli í kirkju á annað borð þurfi engar klukkur til að láta sig vita. Ætli það sé einhver sem vakni við klukkurnar og segi já - best að fara í kirkju í dag? En jæja, ég er komin á hálan ís - ég er að hugsa um að fá mér Cheeriosið mitt og læra svo fram að 2 en þá ætla ég að fara að horfa á hetjurnar í liðinu mínu keppa á MÍ 15-22 ára! ÁFRAM ÍR! Hafdís skrifaði klukkan 11:48 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||