|
|||||||||||||||||||
|
25.2.04
Í örvæntingarfullri tilraun til að vera pæjuleg setti ég á mig gervineglur í gær. Eins og þeir sem þekkja mig vita er ég ekki með fallegustu neglur í geimi og því ákvað ég að taka til þessa ráðs.
Það hlakkaði svo í Sveinbirni í gærdag þegar ég ætlaði að fara að skrifa athugasemd á bloggsíðu. Honum fannst þetta ekki leiðinlegt og sá fram á að geta eytt meiri tíma með kærustunni sinni án þess að hún væri í tölvunni! Þar skjátlaðist honum, ég er eiginlega bara meira í tölvunni þar sem ég er ennþá lengur að skrifa með þetta drasl framan á puttunum... Minnkaði þær nú samt talsvert í gærkvöldi en til þess að ég nái upp mínum vanalega hraða þarf ég að minnka þær enn meira. Það er þó enn erfiðara að skrifa á fartölvuna þar sem takkarnir eru svo grunnir - ekki mikið pláss fyrir extra neglur. Ég hef heyrt af fleirum sem klúðruðu dönskunni á prófinu en veit ekki um neinn sem þurfti að lýsa mynd eins og ég - ég hefði nefnilega alveg bjargað mér með því að spjalla bara á dönsku í staðinn fyrir að lýsa brúðarkjól og hálsmeni. Bara rugl, skil ekki að þær láti það sama ekki ganga yfir alla! Ein kunningja,,kona" mín lenti líka í því að það tóku bara 2 viðtal við hana en ekki 3 eins og hjá mér. Það voru sem sagt 3 flugfreyjur í hvoru herberginu - nice! Engin pressa! Jæja, er hætt að velta mér upp úr þessu...þetta kemur í ljós eftir 2 vikur! Hafdís skrifaði klukkan 4:48 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||