2.2.04
ÍR-íslandsmeistari í flokki 15-22 ára! Ég get ekki líst gleði minni og hamingju yfir því að fyrsti bikar ársins hafi lent í okkar kjöltu! Ég er búin að vera að deyja úr stolti alla helgina og litla ÍR hjartað mitt sló ört og títt á meðan ég fylgdist með mótinu í gær. Það var svo gaman að sjá hvað hvað og einn var tilbúinn til að gera fyrir sitt lið. Flestir kepptu í mörgum greinum og 62 persónuleg met litu dagsins ljós - þetta sýnir bæði styrk íþróttamannana og færni þjálfaranna. Enda eru ekki mörg lið sem geta státað sig af þjálfara í hverri grein!

ÉG HEF SJALDAN VERIÐ STOLTARI AF ÞVÍ AÐ VERA ÍR-INGUR OG AKKÚRAT NÚNA!

Hafdís skrifaði klukkan 11:50 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli