8.2.04
og enn gerast kraftaverkin.

Ég er búin að vera að læra frá því á hádegi - reyndar með smá MSN-pásu en...
Er alveg að koma sterk inn.

Með þessu áframhaldi verð ég búin að klára spurningarnar í Greiningu og mótun hegðunar fyrir morgundaginn.

Lísa vinkona mín ætlar svo að koma í heimsókn í kvöld. Ég ætla að æfa mig á að mála hana, ég verð snyrtifræðingurinn hennar fyrir árshátíðina sem er 10.feb. Vona að þetta gangi vel og hún verði sætari en vanalega - þá verð ég sátt.

Annars er bara sama vandamál og síðustu ár, mig vantar árshátíðarkjól. Er að hugsa um að leigja mér bara kjól. Allar vinkonur mínar eru svo mjóar eða ganga ekki í kjólum.
Ég fór í brúðkaup í sumar og þá leigði ég afskaplega fallegan kjól og ég sá einn mjög fallegan í auglýsingu frá leigu um daginn og ætla að skella mér í hana í næstu viku.

Núna hringir síminn og gefur mér til kynna að þvottavélin sé búinn ;)

Hafdís skrifaði klukkan 2:07 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli