11.2.04
Mín tók sig til í morgun og var ofur pæjuleg annan daginn í röð, reyndar var ég mjög svefndrukkinn í tímanum mínum kl.8:40 í dag og ekki bætti úr skák að kennarinn minn er sehr leiðinlegur og segir ekki neitt sem gagnast manni.
Ég gafst upp eftir klukkutíma, fór heim og gekk frá fullt af íþróttadóti og öðrum skemmtilegheitum.
Í leiðinni ákvað ég að það væri sniðugt að fara bara í íþróttafötin - ég var líka orðin dáldið þreytt í tánum eftir að vera í hælaskóm í klukkutíma og labba 500m - var í íþróttaskóm það eftir lifði dagsins.

Þrátt fyrir vonbrigðin með kvenlegheit mín í dag held ég að þetta sé allt að koma - ég finn það.

Kraftaverkin gerasta síðan enn og aftur um helgina þegar undirrituð tekur þátt í fyrsta mótinu sínu síðan í febrúar 2003!
Það ætti að trekkja áhorfendurnar að - það minnir mig á það, hvar ætli keppnisbúningurinn minn sé? Ætli ég passi ennþá í hann?

Annars sýndum við skötuhjúin hörku í dag þegar við keyptum okkur Serrano í stað þess að kaupa Pizzu á Dominos. Reyndar vorum við bæði sammála um að okkur langaði ekki í Dominos - Sigurjón ég veit af hneykslun þinni!

Ætli það sé ekki best að taka bækurnar upp áður en ég fer að sofa...
Get alla vega horft á þær í smá stund!

Hafdís skrifaði klukkan 9:20 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli