27.2.04
Letin hefur heltekið líkama minna! Það eru tveir dagar síðan ég fór á æfingu síðast, ég nenni varla að standa upp úr sófanum og við Sveinbjörn þurftum að keppa um það hvort færi EKKI til að afla matar! Ég tapaði og fór...

Reyndar sýndi ég smá hörku í gær þegar ég skellti í eina skúffuköku, Sveinbirni og Margréti vinkonu minni til mikillar ánægju! Ég brá líka út af vananum og var bara nokk dugleg að læra og vil ég þakka Margréti fyrir það aðhald sem hún sýndi mér, takk, takk.

Við horfðum annars á Cold Mountain í gær, hún er bara ágætis afþreying en þó nokkuð fyrirsjáanleg. Fríðleiki Law tekur stakkaskiptum en Kidman er alltaf jafn fögur og fín - heldur grönn fyrir mig en...

Ég er að fara í próf á eftir, próf í verklegri Tilraunasálfræði en hún felst í því að læra á tölfræðiforritið SPSS, mjög skemmtilegt.

Æ, líf mitt einkennist af leiðindum þessa dagana!

Ég er búin að prófa Burger King í Smáralind og verð ég að fullyrða að Burger King á Spáni er MUN betri og 100% ódýrari. Held að þetta sé ekki alveg sniðugt hjá þeim að rukka 849 krónur fyrir máltíð þar sem það er dýrari en að fara á American Style og stylinn slær burgarana út með léttum leik. Ég held mig bara við Subway í Smáralind!

Hafdís skrifaði klukkan 9:50 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli