7.2.04
Kraftaverkin gerast enn!

Undirrituð fór í sund í dag með mjónunni Ernu og félaga okkar og svertingjanum honum Andra. Reyndar er Erna svartari en...
Ég hef sem sagt ekki farið í sund síðan einhvern tímann árið 2002 held ég ;) Það er alla vega MJÖG LANGT síðan.

Ernu hefur örugglega tekist að koma einhverju af þessum æluvírus í mig þar sem maginn á mér hefur ekki verið stilltur seinustu tvo daga! Mér er mjög óglatt og hef litla matarlyst. Ældi næstum því matnum mínum í gær en þrjóskan bjargaði því. Ég hef engan tíma til að vera veik núna og því nenni ég ekki svona vitleysu. Er líka að æfa svo mikið að þetta kemur ekki til greina!
Vona að þessi aðferð virki betur hjá mér en elsku Ernu.
að
Í kvöld er síðan bara stuð og stemning, er að fara í afmæli! Reikna með hörkufjöri en sökum mikillar skynsemi ætla ég að fara snemma heim. Verð að druslast til að læra eitthvað á morgun þar sem dagurinn í dag fór í sundferð, hádegismat í Kringlunni og Everton - Manchester, eftir þann leik var ég með taugarnar svo þandar að ég hefði ekkert getað lært hvort eð er.
Góð afsökun!

Góða helgi!

Hafdís skrifaði klukkan 7:37 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli